Vid tjoldudum til einnar naetur her i Mishima.
Fengum inni a Buissneshoteli og vorum heppnir med ad fa herbergi a 10 haed.
Tadan er haegt ad sja til 3 atta og eg vaknadi 5.30 til ad sja solarupprasina, sem er reyndar ekki fyrr en 6.15.
Tvi midur var mikid mistur og tad rett grillti i Fujifjallid og engin sol sjaanleg.
Fuji (3776 m) er i 50-60 km fjarlaegd en sest vel (ef ekki er mistur eda myrkur, eda hus fyrir eda madur er med bundid fyrir augun osfr)
Mer finnst eg finna greinilega fyrir naerveru tess.
A leid minni a netkaffid gekk eg fram hja morgum litlum gordum frabaerlega fallegum.
Manni finnst hvert einstakt tre fallegt og er ekki ad furda eftir ad sja hvada alud er logd vid umhirdu hvers tres.
Eg fylgdist med gamalli konu sem var a hnjanum i grjotbedi med FLISATONG, i heilar
15 min. og hun faerdi sig ekki um set allan timann og var aldeilis ekki idjulaus.
Eg a 150 myndir tessu til sonnunar.
Eg vard fyrir vonbrigdum med Kyoto, liklega vegna ofvaentinga.
Vissulega eru mikil hof og fagrir gardar, en borgin er gridastor og miklar vegalengdir og mikid um turista. Eg las ad 50 milljon japanir heimsaeki Kyoto a ari.
Eg gekk framhja netkaffinu tvi eg var svo vitlaus ad horfa eftir skilti med einhverjum texta sem gaefi til kynna starfssemina. Nei, ekkert svoleidis og tad geta verid talsverdir erfidleikar med malid.
Td. i gaer tegar vid kommum til Mishima ta spurdum vid strax, i lestastodinni, eftir
"turist information" en engin skildi hvad vid vorum ad spyrja eftir, svo tegar vid gengum nidurlutir a braut ta rakumst vid a Turist Information skrifstofu 10 m fra.
Vedrid er buid ad leika vid okkur (nema regnid i Osaka) 18 - 26 stiga hiti.
Vid bidjum ad heilsa ollum sem ekki fengu kvedju i gaer ( og lika teim) og serstaklega sem setja inn comment.
PS tad var skammgodur vermir (eftir allt umstangid) ad fa simana hladna, tvi tad kom i ljos ad NOKIA simarnir eru ekki gjaldgengir her.
PS Simaadgangurinn sem eg borgadi 5000 ¥fyrir virkar bara mjog sjaldan -
eg hef nad sambandi 2svar en profad 30-40 sinnum.
þriðjudagur, 23. október 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
9 ummæli:
heyrðu bói, hvernig fór þetta með myndirnar?
Hoj! (nota þetta þangað til ég veit hvernig á að heilsa að stórhöfðingjasið)- við þökkum góðar kveðjur.
Erum orðin svaka spennt eftir myndum, ég held að þið verðið að hafa svona stórt myndakvöld því við viljum auðvitað sjá allar 10.000 myndirnar.Það er nú ekki laust við að hér séum við líka farin að sakna ykkar þó við vitum að þetta sé meiriháttar ferðalag.
ég býst við að flestir sem lesa bloggið þjáist af öfundsjúkdómnum, og til að lina einkenni er gott að sjá og ræða um fyrirheitna landið...Ásta dafnar vel og orðin voða góð í að smella kossum, út í loftið reyndar. Bestu kveðjurErna-san, Óli-san og Ástan-san
Gleymdi ,verð að vita, er bæði takkaborðið og stafirnir sem birtast á skjánum á Japönsku?
þetta er aldeilis ævintýraferð - vildi óska að ég væri með ykkur.
hlakka mikið til að sjá myndir - dísa stóra sys
Sæll ástin mín! Veit loksins hvernig ég á að svara þér. Kom í gærmorgun frá Boston úr frábæru sumarveðri, Raggi var eins og Arabahöfðingi með konurnar sínar, ekkert var nógu gott fyrir okkur. Gerðum reyndar lítið annað en versla og sitja á kaffihúsum en samt frábær ferð. Kom mér á óvart hvað Kaninn er jákvæður og þjónustulipur
Frábært hvað veðrið er að leika við ykkur en verra að heyra af óförunum. Vonandi ertu betri í fætinum. Kær kveðja! Be
Sæll höfðingi.
Mikið er ég ánægð með kallinn! Ég er búin að setja bloggsíðuna í favorites:) ætla semsagt að fá að fylgjast með þér í ferðalaginu.
Hafðu það gott.
Kv. Irena
Var að fá adressuna hjá Ernu, fylgist með....er einhver munur á Keili og Fuji...?
Gestur
Var að fá adressuna hjá Ernu, fylgist með....er einhver munur á Keili og Fuji...?
Gestur
Það er ekki laust við að það sé ævintýrabragur á þessu öllu hjá ykkur samuræjunum. öll þessi vandamál verður það sem þið munið mest eftir þegar heim er komið. Ég var fyrst núna að lesa ferðasöguna og er ekki laust við smá vott ósk um að vera þarna með ykkur. þið eruð semsagt búnir að fá ykkur smá skammt af japönskum mat. Hann er sko ekkert "slor" eða "tros" eða þannig. Voru ekki ennþá eitthvað af fallegum límmiðum á staurunum í Kyoto? :) þið eigið eftir Tokyo sem er ekki slæmt, þíð ættuð að skoða Ashai bjór húsið sem er teiknað af Philip Stark, rosa flott og að á sér einn kaldann á barnum uppi á efstu hæðinni. sukijaki og saionara Eyþór
Skrifa ummæli